Á þessari síðu verða til vinstri flokkaðar myndir frá hinum ýmsu stöðum sem verða á leið okkar. Til hægri eru hins vegar hlekkir á gagnlegar upplýsingar um sömu staði. Efst til hægri eru síðan hlekkir á greinar um TransSiberian og TransMongolian járnbrautirnar, tilurð þeirra og byggingu. Upplýsingarnar á bak við hlekkina eru stórt séð í lagi, þó örlítið þurfi að hafa varan á þar sem þetta er "opin" upplýsingaveita. Þ.e. hver sem er getur skrifað í þetta, en mér hefur þó reynst þetta ágætlega traust fram að þessu. A.m.k. er þarna ýmislegt áhugavert, sérstaklega fyrir þá sem hafa annað hvort, enga hugmynd um þetta svæði, eða þá ranghugmyndir :)